Deyr fé deyja frændr ...en orðstírr.. hveim er sér góðan getr.. deyr aldregi

 Á einhverjum þeim mestu umbrota tímum í íslenskri sögu sem nú geysa yfir, fara stjórnmálin ekki varhluta af þeirri ólgu sem nú geysar yfir landinu í norðri sem og heimsbyggðinni, þar sem nú er svo komið að heimurinn hefur aldrei verið smærri né samtvinnaðri heldur en einmitt nú.  Ástand fjármálamarkaða á heimsvísu hefur ekki farið fram hjá neinum né sú blákalda staðreynd að brínt aðkallandi mál er varða lífsgæði og viðurværi jarðarbúa berja að dyrum og stórra spurninga er spurt.  Því er óhætt að segja að það fólk sem velst til starfa í stjórnmálum þessi misserin er óneitanlega krafið um skýra stefnu og kunnáttu á málum sem enn heilu þjóðirnar eru að reyna að svara í hraða tímans og þeirra atburða líðandi stundar sem banka á með látum enda í mörg horn að líta og hraðann þarf að hafa á að finna söguleg fordæmi sem fela í sér lausnir.  Ábyrgð stjórnmálamanna sem og framámanna í viðskiptalífi er því gríðarleg og mæðir mikið á þessu ágæta fólki í slíkum ólgusjó.  Í Ráðhúsi Reykjavíkur fengum við að verða vitni að þessum ólgusjó og þeirri ábyrgð sem á herðum þessa fólks hvílir.  Það voru augljós verkefni framundan sem krefjast þess að vera leyst farsællega og ábyggilega þjóð og borgarbúum til heilla. Ungur farsæll borgarfulltrúi Björn Ingi Hrafnsson steig niður og vék frá vegna stöðugra árasa samherja um mál sem fölna í samhengi þeirra málefna sem Björn Ingi hefur ötullega starfað að og komið í verk.  Hugsuður og leiðtogi hefur dregið sig í hlé.  Ég vona til Guðs að hann noti það til þess að hlaða batteríin og efla hug og anda því eitt er víst að ferilskrá mannsins sem og kjarkur hans og þor er og verður sannarlega þörf á, á Íslandi nútímans í heimi sem stefnir áfram inní framtíð hreint ótrúlega krefjandi og spennandi.  Ég bendi öllum þeim sem hafa áhuga á staðreyndum um karakter Björns Inga Hrafnssonar að fara inná www.ruv.is og hlusta á umsagnir stjórnmálaleiðtoga úr öllum flokkum í borgarstjórn fara lofi um störf hans og manninn sjálfan.   Þennan mann þekki ég vel og styð!  Því þar fer maður góður.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband